Traust
ástandsskoðun.
Sími899-8600Við sérhæfum okkur í ástandsskoðunum fasteigna og veitum faglega og hlutlausa ráðgjöf fyrir bæði kaupendur og seljendur. Markmið okkar er að tryggja að þú hafir skýra mynd af ástandi eignarinnar.

Fagleg ráðgjöf um viðhald
Ástandsskoðun
Ítarleg úttekt á ástandi fasteignar — þak, klæðningar, raki og burðarvirki. Niðurstöður flokkaðar eftir alvarleika með skýrum tillögum að úrbótum.
Kostnaðaráætlun
Áætlun um kostnað við þær úrbætur sem skoðun leiðir í ljós, svo þú hafir skýra mynd af því sem framundan er áður en gengið er frá kaupum.
Gerð útboðsgagna
Útboðsgögn fyrir viðhaldsverk — verklýsingar, magnskrár og kostnaðaráætlanir — svo verktakar bjóði í sama verkið og tilboðin verði samanburðarhæf.
Útboð viðhaldsverka
Umsjón með útboði viðhaldsverka fyrir húsfélög og eigendur, frá auglýsingu til yfirferðar tilboða og ráðgjafar við val á verktaka.
Eftirlit með framkvæmdum
Faglegt eftirlit á verktíma sem tryggir að verkið sé unnið samkvæmt útboðsgögnum, með góðum frágangi og innan kostnaðaráætlunar.
Hafa samband
Ertu með verkefni í huga? Segðu okkur frá því og við förum yfir næstu skref saman.
Hafa samband
Byggingafræðingur og smiður með mikla reynslu
Bragi Michaelsson stofnaði Beton og leiðir hverja skoðun sjálfur. Hann er byggingafræðingur og húsasmíðameistari með áralanga reynslu úr byggingageiranum á Íslandi og í Danmörku.
Þessi blanda af handverki, fræðum og rekstrarþekkingu tryggir hlutlausa úttekt þar sem niðurstöður eru útskýrðar á mannamáli — án hagsmunatengsla við kaupanda, seljanda eða fasteignasala.
Með áralanga reynslu úr byggingageiranum leggjum við áherslu á vönduð vinnubrögð, nákvæma skýrslugerð og góða þjónustu. Með faglegu og skilvirku verklagi gerir það okkur kleift að meta ástand eignarinnar og greina helstu áhættuþætti.
Við trúum því að traust og gagnsæi skipti öllu máli. Þess vegna leggjum við okkur fram við að útskýra niðurstöður á mannamáli, svo þú getir tekið upplýsta ákvörðun og byggt hana á góðum grunni.
Gagnsæ verðlagning.
Enginn falinn kostnaður.
Verð miðast við stærð íbúðarhúsnæðis. VSK innifalin og akstur innan höfuðborgarsvæðisins. Atvinnuhúsnæði og húsfélög samkvæmt tilboði.
Sjá fulla verðskráAlgengar spurningar um ástandsskoðun.
Hvað kostar ástandsskoðun?
Verð miðast við stærð íbúðarhúsnæðis, frá 129.900 kr. fyrir eignir undir 100 m² upp í 219.900 kr. fyrir 301–400 m². Virðisaukaskattur og akstur innan höfuðborgarsvæðisins er innifalinn. Atvinnuhúsnæði og húsfélög eru verðlögð samkvæmt tilboði.
Hversu fljótt fæ ég skýrsluna?
Ástandsskoðunarskýrsla er afhent innan 48 klukkustunda frá því að ástandsskoðun er framkvæmd.
Hvað er skoðað í ástandsskoðun?
Farið er yfir þak, klæðningar, raka, burðarvirki og frágang eignarinnar. Þar sem hægt er að mæla er mælt — með rakamælum og hitamyndavél — og niðurstöður flokkaðar eftir alvarleika með skýrum tillögum að úrbótum.
Hvaða svæði þjónustar Beton?
Beton þjónustar allt höfuðborgarsvæðið — Reykjavík, Kópavog, Hafnarfjörð, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes — auk nágrennis.
Fyrir hvern er ástandsskoðun?
Ástandsskoðun nýtist bæði kaupendum og seljendum. Skoðunin er hlutlaus og óháð, án hagsmunatengsla við kaupanda, seljanda eða fasteignasala.
Tilbúin að bóka
skoðun á fasteign?
Ástandsskoðunarskýrsla er afhent innan 48 klukkustunda frá ástandsskoðun. Hafðu samband með því að fylla út formið hér til hliðarhér að neðan eða sendu tölvupóst á beton@beton.is eða hringdu í síma 899-8600.