Beton skoðunarappið — aðstoð og upplýsingar
Skoðunarappið er vinnutæki Beton ehf. fyrir ástandsskoðanir og kostnaðarmöt á vettvangi. Aðgangur er bundinn við samþykkta notendur á vegum Beton; ekki er hægt að stofna aðgang í appinu sjálfu. Kynningarútgáfu með sýnigögnum má þó skoða án innskráningar.
Skoðun stofnuð
Skoðunarmaður skráir heimilisfang, upplýsingar um eignina, verkkaupa og dagsetningu.
Rými og athugasemdir
Farið er í gegnum eignina rými fyrir rými. Athugasemdir eru skráðar með lýsingu, tillögu og alvarleikamati.
Myndir
Skoðunarmyndir eru teknar beint í appinu og hitamyndir fluttar inn úr myndasafni. Myndir tengjast rýmum og athugasemdum.
Skýrsla
Ýtt er á „Búa til skýrslu“. Notandinn velur hvort AI aðstoðar við skýrslutextann (krefst nettengingar og staðfestingar) eða hvort skýrslan er unnin á tækinu án AI. Fullbúinni PDF-skýrslu má deila, vista eða senda í skjalasafn Beton.
Virkar appið án nettengingar?
Já. Allar skoðanir, athugasemdir og myndir vistast fyrst staðbundið á tækinu, svo hægt er að vinna heila skoðun án tengingar. Gögnin samstillast við skýjaþjónustuna þegar tenging næst og notandi er innskráður.
Samstilling virðist ekki ganga
Athugaðu nettengingu og að þú sért innskráð(ur) — í flipanum Stillingar á að standa „Tengt skýjaþjónustu“. Samstilling fer sjálfkrafa í gang þegar appið er opnað aftur. Ósamstilltar breytingar bíða á tækinu og samstillast þegar tenging og innskráning eru komnar í lag; ef staðan lagast ekki, hafðu samband.
Myndavél eða myndasafn opnast ekki
Appið þarf heimild fyrir myndavél (skoðunarmyndir) og myndasafn (hitamyndir). Ef heimild var hafnað: opnaðu Stillingar símans → Beton → leyfðu Myndavél og Myndir. Appið notar aðeins myndir sem þú tekur eða velur sjálf(ur).
Skýrslan verður ekki til eða vantar AI-texta
Skýrslu má búa til á tækinu án nettengingar, út frá skráðum athugasemdum og myndum. AI-aðstoð við textann og PDF af vefþjóni krefjast nettengingar, innskráningar og staðfestingar — ef sá hluti bregst reynir appið að ljúka skýrslunni með staðbundnu útgáfunni. Ef skýrslugerð stöðvast alveg: opnaðu skoðunina aftur og reyndu á ný, og hafðu samband ef það dugar ekki.
Ég fæ ekki innskráningarkóða í tölvupósti
Aðgangur er bundinn við samþykkt netföng á vegum Beton — netfang sem ekki hefur heimild fær ekki kóða. Athugaðu einnig ruslpóstmöppuna. Ef vandinn er viðvarandi, hafðu samband í netfangið hér að neðan.
Þarftu aðstoð með appið, aðgang eða gögn? Sendu tölvupóst á beton@beton.is og lýstu vandanum — hvaða skref var í gangi og hvaða skilaboð birtust. Ekki senda skjámyndir eða gögn með upplýsingum um viðskiptavini nema sérstaklega sé óskað eftir því.
Upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga í appinu eru í persónuverndarstefnu skoðunarappsins.
English: Beton Inspection is the internal field app of Beton ehf. for property condition inspections. Access is limited to approved Beton personnel. For support, email beton@beton.is. Privacy policy: beton.is/personuvernd.